All The Bitter Aromatic Bitter 118ml

Sale price Price 4.490 kr Regular price Unit price  per 

Tax included. Shipping calculated at checkout.
Bitterar eru ein mikilvægustu hráefnin í kokteila og hafa verið órjúfanlegur hluti þeirra í hundruðir ára en hvað eru bitterar?

Bitterar eru í raun kryddblöndur í vökvaformi sem barþjónar nota óspart til að fá meiri dýpt og fínleika í sköpunarverk sín. Það þarf aðeins nokkra dropa af þessum kröftuga bitter til að taka drykkinn þinn á næsta level!

All The Bitter er leiðandi bitter framleiðandi sem notar einungis náttúruleg hágæða hráefni í blöndurnar sínar sem hafa unnið hver verðlaunin á fætur öðrum. Bitterinn er áfengislaus og hentar því einnig fyrir þá sem kjósa að drekka áfengislausa drykki.

Aromatic Bitter frá þeim er að keppa við hinn fræga Angostura Bitter og bragð hans er af bökunarkryddum svosem kanil, anis, engiferi, allrahanda, negul og kardamommum. 

Við mælum hiklaust með því að prufa að setja bitter í þinn uppáhalds kokteil!